júlí 2009


djöfull hlakka ég til að fá kaffitíma í vinnunni!!  þ.e.a.s. ef ég fæ vinnu þegar ég kem aftur til Íslands…….

ég borða morgunmatinn minn ca. 7:20 og svo kemur næsta máltíð ekki fyrr en um 13:30 því við komumst ekki fyrir í matsalnum fyrr en þá. á þeim tíma er ég alltaf orðin svo mega svöng að ég þarf bókstaflega að minna mig á að tyggja matinn minn áður en ég sendi hann ofan í maga!

án djóks! ég þarf actually að segja “Eydís tyggja matinn sinn!” ;) getur ekki verið hollt…..

stelpurnar í vinnunni vilja endilega fá okkur í blakliðið þeirra fyrir eitthvað mót milli lyfjafyrirtækja hér í Lima. það skiptir víst ekki máli hvort ég kunni eitthvað því ég er nefnilega svo hávaxin;) 166 cm beibí;) múahaha

lungun eru núna loksins hætt að kvarta þegar ég fer út að hlaupa (7-9-13). engan smá tíma sem það tekur fyrir þessi grey að jafna sig!! 

en ég er að vísu soldið að finna fyrir veika hnénu mínu núna. held reyndar að þetta séu bara einhversskonar öfgakenndir strengir því ég er að ná rétta fullkomnlega úr löppinni/hnénu í fyrsta skiptið núna í 4 ár!!! það hlýtur nú eitthvað að hafa  stirðnað á þessum árum;)

Vona að þetta lagist fljótlega því ég elska að fara út að hlaupa og svitna svolítið. mér finnst ég pínu vera að svindla og ekki að fá eins mikið útúr sturtunni ef ég er ekki hlaupasveitt/þreytt þegar ég fer inní hana;)

Skál fyrir að geta loksins rétt úr hnénu sínu!!

 

Hér að lokum er svo mynd fyrir þá sem nenna bara að skoða myndir en ekki lesa texta;)

jude

Síðan ég flutti til Perú hefur verið ótrúleg fjölgun hjá mínum allra nánustu og ég hlakka svo til að fá að knúsa og kynnast þessum litlu snillingum!!

Gunnlaugur Yngvi Elínarson

Þetta er hann Gunnlaugur Yngvi Elínarson. Litli gullmolinn þeirra Guðrúnar systur og Elínar. Finnst ótrúlegt að hann verði orðinn 1 árs og gott betur en það þegar ég loksins fæ að knúsa hann og spilla honum;)

4418_93779176706_507631706_2391662_7253566_n

Þetta er hún Ellen Dagmar Petersdóttir Bolding. Prinsessan þeirra Sigrúnar Lenu og Peters;) Myndi nú sennilega ekki fá mörg tækifæri til að knúsa hana þó ég væri á Íslandi, þar sem hún býr í Danmörku, enda hálfur Dani;)

Elsa Björg og Sara Björt

Svo býr hún Sara Björt Ámundadóttir í Svíþjóð með Elsu Björgu stóru systur sinni. Þær eru skvísurnar þeirra Ástu og Ámunda, sem eru sko nýorðin hjón;)

Róbert Óli

Þetta er Róbert Óli Hannesson;) Þriðji grallari þeirra Konnýjar og Hannesar. Veit að þetta verður algjör snillingur eins og stóru bræður hans)

Sara María

Svo kemur Sara María Aradóttir, dóttir Mæju og Ara. Fyrsta prinsessan á þeim bæ;)

Hekla Lind

Hér er hún Hekla Lind Axelsdóttir í agalega sumarlegum og smekklega völdum kjól frá Perú;) Hún er dóttir þeirra hjóna, Guðrúnar Lindar og Axels;)

Atli Valur

Nú síðastur en alls ekki sístur (hann er bara yngstur) er hann Atli Valur Jóhannsson, sonur Heiðar og Jóa. Þetta er lítill snillingur ef marka má genablönduna sem hann er mixaður úr;) Það er líka gaman að maður skuli bara vita það nákvæmlega hvernig hann mun líta út eftir 30 ár, þar sem barnið er gjörsamlega alveg eins og pabbi sinn!

…mér til mikillar gleði er ég búin að finna djammarann í mér aftur eftir stutt hlé. Þurfti bara smá aðlögun eftir að systur minni og djammfélaga var stolið af mér;)

…ég er búin að klára 12 hluti af 20 mögulegum af “Things to do in Perú” listanum en Eygló er búin með 11 hluti. Ég ætla að vinna þessa keppni eins flestar aðrar keppnir sem ég skrái mig í þessa dagana;)

…skil ekki hvaðan þetta óvænta keppnisskap kemur but I like it;)

…síðasta laugardagskvöld leit ég í spegil áður en ég fór út og fannst ég sæt. það er svo gott að finnast maður sjálfur sætur!  það er eiginlega bara best í heimi;);)

…á rúmlega ári er ég búin að kveðja 26 kíló sem ég ætla aldrei aldrei aldrei að hitta aftur!

…eftir 4 kíló verða þessi týndu kíló því orðin 30 og þá fæ ég verðlaun!  Nýtt tattoo;)

…það verður að vísu sennilega svolítil bið í þetta tattoo því ég er að standa rosalega í stað núna. En það verður komið áður en ég kem aftur til Íslands!!!

…í dag fór ég að leita mér að brjóstahaldara því 26 týnd kíló fara að sjálfsögðu líka af þeim hluta líkamans. Þeir sem þekkja mig, já eða hafa bara einhverntímann séð mig, gera sér fyllilega grein fyrir því að það þarf nú að vera vel æfður í stafrófinu til þess að afgreiða mig um rétta skálastærð fyrir herlegheitin. Ég sá ekkert stærra en C-skál eins og vanalega í öllum búðum hérna og bað því afgreiðslustúlku um að aðstoða mig.  Blessuð stúlkan rétti mér B-skál af þeim sem mig langaði að máta!!  B-skál!!!  uhh viltu ekki bara boðskort í ferminguna mína líka?? ….og þú bara vinnur við þetta vina???

…túristavísað okkar er að renna út í næstu viku og við erum ekki enn vissar hvort við verðum búnar að fá atvinnuleyfið okkar fyrir þann tíma!

…letinginn og nautnaseggurinn í mér vonar eiginlega að við þurfum bara að fara til Ekvador eða eitthvað til þess að endurnýja túristavísað okkar;)

…en skynsemingurinn í mér, sem finnst voðalega gott að geta keypt sér að borða og svoleiðis, er ekki alveg á sama máli og letinginn:/

…bakpokaferðalagið um Suður-Ameríku byrjar eftir 74 daga;);););)

 

morgunmatur

játs nú hefst færsla sem mig grunar nú að verði verulega löng og þyrfti því ef til vill að lesa í nokkrum pörtum;)

Eftir nokkra frábæra daga í Lima, héldum við í 15 klukkutíma rútuferð til Arequipa, sem er næst stærsta borgin í Perú.  Borgin er í 2350 metra hæð og ég fór strax að finna fyrir hæðinni þegar við vorum búin að vera þarna í 2-3 tíma;) Hæðin virtist ekki hafa svona mikil áhrif á hina krakkana en ég var hinsvegar alltaf með brjálaðan þrýstingshausverk og svima. Ég meira að segja datt þegar ég var að labba eftir gangstétt, bara allt í einu uppúr þurru;) djö var það fyndið hehe. Eftir það skiptust krakkarnir á að halda við mig þegar ég var að labba eins og ég væri gömul kona;) En Hanna var með lyf sem hægt var að taka til þess að halda einkennunum niðri og þau virkuðu ágætlega. En þau versta við það var að lyfið gerðu það að verkum að bjór var ógeðslega vondur…. ekki gott! og því hætti ég nú að taka lyfið þegar leið á ferðina, alveg glatað að vera í holiday og geta ekki drukkið bjór;) en hæðin vandist sem betur fer;) Var líka dugleg við að tyggja kóka-lauf og kóka-nammi, sem á víst að vera agalega gott. Engar áhyggjur, það þarf víst að tyggja mörg kíló til þess að fá einhver áhrif í líkingu við kókaín;)

Í Arequipa vorum við nú bara aðalega að nördast og hafa að gott. Fórum að skoða safn um ísmúmíuna Juanitu, sem fannst fyrir um 15 árum lengst uppi á fjalli. Talið er að henni hafi verið fórnað af Inkunum fyrir rúmlega 500 árum síðan, en svona fórnir voru algengar í kjölfar náttúruhamfara því þeir trúðu því að fjöllin væru lifandi og því þyrfti að færa þeim fórnir til þess að milda reiði þeirra.  Múmían hefur varðveist ótrúlega vel því þarna efst uppí fjöllum er mikið frost.  Alveg mögnuð saga!

Þarna hittum við Söru, vinkonu Eyglóar og Hönnu frá Danmörku, og höfðum það huggulegt;)

22.júní 007

Þarna er ég á veitingastað sem heitir “On the top”. Ótrúlega falleg fjöllin allt í kring.

Snemma næsta morgun héldum við af stað með rútu áleiðis til Colca-canyon, sem er dýpsta gljúfur í heimi og er meira en tvisvar sinnum dýpra en Grand-canyon í Bandaríkjunum. 

Á leiðinni sáum við 3 af þeim 4 kameldýrategundum sem lifa í Perú. Þau eru ótrúlega krúttleg, sérstaklega Alpaca-tegundin, og ullin af þeim er mjög mjúk og fín. Keypti mér peysu úr alpaca-ull;) Smakkaði reyndar líka alpaca-kjöt, það var ágætt en ekkert voðalega krúttlegt:/

22.júní 024

 

Í þessari ferð fórum við hæst uppí 4910 metra takk fyrir!!

Seinnipart þessa dags vorum við svo komin í lítinn 300 manna bæ í miðjum “Colca þjóðgarðinum” og lögðum strax af stað í náttúrulega heita potta ásamt vinkonu okkar, gamalli dúllukonu sem rak hostelið sem við gistum á.  Ekkert smá næs pottar en shit hvað ég hélt ég myndi deyja á leiðinni yfir eldgamla hengibrú sem var ekki beint sá sterkasta í bransanum;)

Stefanía 023

 

Þarna um nóttina fundum við langmest fyrir hitastigs öfgunum sem eiga sér stað uppí fjöllunum. Þegar sólin skín á daginn er þvílíkur hiti og bongóblíða en um leið og hún fer er svo fáránlega kalt!!! Áttum í erfiðleikum með að sofa þarna og vorum öll í 3 lögum af fötum og undir tvöföldu ullarteppi. Ótrúlegar öfgar!

Simmi 2 170

Hér erum við félagar með vinkonu okkar sem rak hostelið.

Nú þá héldum við áfram til Colca-canyon, sem var u.þ.b. 1&1/2 tíma akstur frá hostelinu okkar.  Ekkert smá fallegt þarna og þegar við komum þangað var ekki laust við að maður finni til smæðar við þetta dýpsta gljúfur heims.  Maður er eitthvað svo ótrúlega lítill og vanmáttugur gagnvart svona náttúru!!

Þarna búa risastórir hræagammar og einhver sagði mér að vænghafið hjá þeim getur orðið allt að 4 metrar. Trúi því svo sem alveg því þetta eru risastór kvikindi!

Simmi 2 179

 

Nú svo hittum við einhverskonar fálka á förnum vegi og urðum við að sjálfsögðu strax góðir vinir;)

22.júní 065

Eftir þetta ævintýri var haldið af stað til Puno, sem var u.þ.b. 6 klst. ferð í einka-minivan;) ekkert nema v.i.p. fyrir Íslendinganna;) Náttúran á þeirri leið var alveg sláandi lík íslenskri náttúru og höfðum við oft orð á því þar eins og oftar í ferðinni.

Við borgina Puno er vatn sem heitir Lago Titicaca og hinum megin við vatnið er Bólivía.  Perú á því u.þ.b. 60% af vatninu og  Bólivía restina held ég. Vatnið er þekkt fyrir að á því eru um 35-40 “fljótandi eyjar”. Eyjarnar eru gerðar úr stráum sem vaxa uppúr vatninu og allt á eyjunum er gert úr þessum sömu stráum; húsin, húsgögn, bátar og fleira. Svo nota þau bara stórar sólarrafhlöður til að rafmagna þetta allt saman og m.a. horfa á sjónvarpið og svoleiðis kósíheit.

Simmi 2 265

Hérna er ég á einni af fljótandi eyjunum, sem heitir Uros.

Ætlunin var að taka svo rútu frá Puno til Cusco en vegna mótmæla og óeirða á leiðinni þá neyddumst við til þess að fjáfesta í tveimur rándýrum flugum, flugum til Lima og gistum þar eina nótt og flugum svo þaðan til Cusco. Er samt fegin að við flugum því þessar óeirðir eru alltaf aðverða harðari og harðari. Indjánar úr frumskóginum eru að mótmæla samningum sem perúska ríkið gerði við olíuframleiðendur og þeir hafa verið að fella tré yfir vegi til þess að hindra bílaumferð. En þegar þeir byrjuðu að grýta fólk með steinum og kveikja í rútum, þá leist okkur nú ekkert voðalega vel á að fara með rútu.

Cusco var brilliant. Mikið tan og mikið djamm;). Komum þarna þegar Inti Raymi hátíðarhöldin voru, sem er einhverskonar hátíð sólarinnar.  Skrautlegar og alltof langar skrúðgöngurog læti. 

1.júlí 020

Hafiði reynt að eiga samræður við Frakka sem talar ensku með alveg svakalega frönskum hreim?? eins og það sé ekki nógu erfitt, bætið þá mega hárri diskótónlist við;) Var eitthvað að tala við franskan vin hans Johns og svo allt í einu segir hann við mig að ég sé eins og demantur!! ég varð nú soldið hissa því samræðurnar höfðu nú ekkert verið á þessum nótum. Svo ég segi bara: really??

en svo segir hann aftur: “you are lika diamond”(verðið að segja þetta með mega frönskum hreimi).  

ég: what? oh thanks;)

en svo þegar maðurinn segir þetta í þriðja sinn, þá loksins skil ég hann:/

“do you have the time????”

ohhh hehe no….uhh adios;)    

Hápunktur ferðarinnar var án nokurs efa þegar við fórum til Machu Picchu. Þetta er eitthvað sem er eiginlega ekki að lýsa til þess að fólk skilji nægilega hvernig upplifun þetta er. Þetta er MAGNAÐ! Þvílík fegurð! Þvílík snilld!!

Við lögðum af stað klukkan rúmlega 4 um morguninn því staðurinn opnar klukkan 6 á morgnanna og við áttum að hitta leiðsögumanninn okkar klukkan 7.  Leiðin var nú frekar brött og ég hélt nú um tíma að ég myndi varla meika það upp en ég komst;););) og það var nú vel þess virði því við náðum að sjá sólarupprásina í fallegasta landslagi sem ég hef nokkurn tímann séð!!

Inkarnir hafa verið ótrúlega gáfað og duglegt fólk! Machu Picchu var byggt í kringum 1450 og þeir notuðu bara steina sem fundust á svæðinu. Þeir voru með skóla, vatnsáveitukerfi um allt svæðið frá snævi þöktum fjöllunum um kring. Rennslið var 300 lítrar á mínútu. Þeir yfirgáfu svæðið innan við 100 árum eftir að þeir byrjuðu að byggja það því þeir vissu að Spánverjar voru að nálgast svæðið og að þeir höfðu hertekið heilu þorpin og drepið alla íbúa þeirra.  En Spánverjar fundu þetta aldrei því þetta er í skjóli hárra fjallagarða sem þeir komust aldrei yfir. Þessi týnda borg fannst svo í kringum 1900.

Hanna 3 082

Þetta var í alla staði magnað ferðalag!! Með mögnuðu fólki!!

Þau fóru seint í gærkvöldi og ég er strax farin að sakna þeirra!